KAUP OG REIKNINGSVIÐSKIPTI
Við kaup býðst viðskiptavinum að greiða fyrir vörur með tveimur greiðsluleiðum:
-
Staðgreiðslu með greiðslukorti.
-
Reikningsviðskiptum samkvæmt neðangreindum skilmálum.
Greiðslufrestur reikningsviðskipta er eftirfarandi:
-
Án meðlimakjara: 5 dagar.
-
Með meðlimakjörum „GÆÐI Plús“: 15 dagar.
-
Með meðlimakjörum „GÆÐI Klúbbur“: 30 dagar.
Rekstraraðili Gæði.is, Di Dino Brothers, sér um útgáfu reikninga. Ef reikningur er ekki greiddur á eindaga áskilur rekstraraðili sér rétt til að loka á frekari reikningsviðskipti við viðskiptavin. Jafnframt kann ógreidd krafa að verða send til innheimtu hjá Inkasso samkvæmt gildandi innheimtureglum og lögum.
AFGREIÐSLUGJALD
Ef viðskiptavinur velur staðgreiðslu með greiðslukorti leggst 5% afgreiðslugjald við kaupverð. Gjaldið er innheimt til að standa straum af kostnaði vegna greiðsluþjónustu sem GÆÐI.is nýtir til að einfalda og auðvelda viðskiptavinum kaupferlið.
SKILAFRESTUR OG ENDURGREIÐSLA
Kaupandi hefur rétt á að skila vöru innan 14 daga frá kaupdegi eða afhendingu, að því gefnu að varan sé ónotuð, í upprunalegum umbúðum og að kvittun eða staðfesting á kaupum fylgi með. Skilaréttur nær ekki til útsöluvara, notaðra eða opnaðra vara né sérpantaðra vara.
ENDURGREIÐSLUR OG GALLAR
Endurgreiðsla fer fram þegar skilyrði fyrir skilum hafa verið uppfyllt og varan hefur verið móttekin og yfirfarin af seljanda. Flutnings- og sendingarkostnaður fæst ekki endurgreiddur. Ef vara reynist gölluð verður hún metin sérstaklega og getur það leitt til viðgerðar, skipta á vöru, afsláttar eða fullrar endurgreiðslu eftir atvikum. Um ábyrgð og galla á vörum gilda lög um neytendakaup nr. 48/2003.
AFHENDING OG SENDINGAR
Pantanir sem berast utan opnunartíma eru afgreiddar næsta virka dag. Áætlaður afhendingartími er almennt 1-5 virkir dagar, en afhending getur tekið lengri tíma ef vara er ekki til á lager, er í sérinnkaupum eða á leið til landsins. GÆÐI.is býður ekki upp á fría heimsendingu nema annað sé sérstaklega tekið fram.

