AÐILD OG ÁVINNINGUR
GÆÐI PLÚS og GÆÐI KLÚBBUR eru valkvæðar áskriftarleiðir sem veita aðgang að sérkjörum, afslætti og sérsniðinni upplifun á GÆÐI.is.
GREIÐSLUR OG UPPSÖGN
Meðlimaáskrift er greidd mánaðarlega. Uppsögn skal send á netfangið gaedi@gaedi.is og tekur gildi frá og með næstu mánaðamótum eftir að uppsögn berst. Uppsagnarfrestur er þrír mánuðir miðað við heilan almanaksmánuð. Það þýðir að áskrift fellur niður frá og með 1. degi mánaðar og lýkur þremur heilum mánuðum síðar.
Dæmi:
-
Berist uppsögn 15. mars tekur hún gildi 1. apríl og áskrift lýkur 30. júní.
BREYTINGAR Á AÐILD
GÆÐI.is áskilur sér rétt til að breyta ávinningi, kjörum eða fyrirkomulagi GÆÐI PLÚS og GÆÐI KLÚBBS áskrifta með hæfilegum fyrirvara.
FRÍ HEIMSENDING
Sem meðlimur í GÆÐI KLÚBBNUM færð þú fría heimsendingu alla föstudaga, óháð upphæð pöntunar.
Til að nýta fría heimsendingu þarf að ganga frá pöntun með greiðsluleiðinni „Manual Payment“. Sé pöntun greidd beint í gegnum vefverslunina, en ekki með „Manual Payment“, er ekki unnt að endurgreiða sendingarkostnað. Afhendingar fara fram alla föstudaga. Ef afhendingardagur fellur á almennan frídag eða lokunardag fyrirtækisins færist afhending sjálfkrafa á næsta virka dag.
Meðlimir sem búa utan höfuðborgarsvæðisins fá 50% afslátt af heimsendingarkostnaði.

